| Þjóðhátíð 2010 |

  • Verð á hátíðina í ár er 13.900,-
  • Verð í forsölu er 11.900,-
 
  • Forsala verður í öllum verslunum 10/11.
  • Forsala í Eyjum verður í Skýlinu.
  • Forsala er einnig í Sportbæ á Selfossi.
  • Forsölunni lýkur á miðnætti miðvikudaginn 28. júlí.
 
  • Verð á sunnudeginum er 6.000,-
  • Börn 13 ára og yngri fá ókeypis aðgang
  • Ellilífeyrisþegar fá ókeypis aðgang.
  • Þjóðhátíðin 2010 hefst föstudaginn 30. júlí
  • Frídagur verslunarmanna árið 2010 er mánudaginn 2. ágúst
 

 Rétt er að benda á að ekki verður heimilt í ár að fara á bílum og rútum inná tjaldsvæðið í Herjólfsdal. Þetta gildir um öll farartæki. Undanfarin ár hefur það færst í vöxt að fólk komi á farartækjum og leggi þeim inná tjaldstæðunum og hafi það sem aðstöðu fyrir sig og sýna. Þetta verður ekki leyft innan hátíðarsvæðis lengur. Er þetta meðal annars gert af öryggisástæðum.

 

Það er ekki vandamál að komst til Eyja á þjóðhátíð. Flugfélag ÍslandsFlugfélag Vestmannaeyja eru með loftbrú milli lands og Eyja. Þjóðvegur Eyjamanna, hin glæsilega ferja okkar, Herjólfur, er aðeins tvo og hálfan tíma á milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja. 21. júlí 2010 er stefnt að því að Herjólfur byrji siglingar í Landeyjahöfn. Þá er Herjólfur rúman hálftíma á milli lands og Eyja.

Það er ekkert vandamál að ferðast innanbæjar í Vestmannaeyjum um þjóðhátíðina því að rútur og bekkjabílar eru í ferðum allan sólarhringinn.

 

Sterna býður uppá ferðir í landeyjarhöfn frá Reykjavík.

http://www.sterna.is/